Í forvinnsludeildinni tökum við á móti margskonar verkefnum á mismunandi vinnslustigum.

Við tökum við handritum og hugmyndum og hönnum úr þeim prentgripi frá grunni. Við brjótum um eftir útlitsteikningum og litgreinum, tökum við verkum tilbúnum á plötur og allt þar á milli, allt eftir því hvað hentar viðskiptavininum best. Áður en viðskiptavinurinn hefst handa, mælum við með því að hann hafi samráð við okkur eða komi til okkar. Við veitum ráðgjöf um vinnsluaðferðir, vistun gagna og mynda og hvaða forrit skal nota. Sjá SKIL Á EFNI.

Athugið að hægt er að kaupa þjónustu sem við köllum myndgreiningu á sanngjörnu verði. Við lítum þá yfir litgreiningar sem koma á tölvutæku formi og lögum þær að prentvélunum. Við mælum eindregið með þessu til að auka gæði prentgripanna.






