
Rúlluprentun
Octoman er mjög fjölhæf og hraðvirk hágæðarúlluprentvél sem prentar í 4 lit, allt að 50.000 eintök á klst. Vélin
býður upp á mjög fjölhæfa brotmöguleika en helstu stærðir í einni keyrslu eru A4 8 síður, A5 16 síður, A6 2x16
síður, A4 4 síður, A3 4 síður (hægt að skera í vélinni), 20x20 12 síður, 21x10 24 síður og 10x29 16
síður. Einnig getur vélin heft og skorið 8 síður A4.
Pappírsgerðir eru 60-115gr. í möttum, glans eða háglans.






