Ísafold - Prentsmiðja með 133 ára reynslu

Það er markmið Ísafoldarprentsmiðju og starfsmanna hennar að nýta sem best það hráefni og þá orku sem notuð er við framleiðslu í prentsmiðjunni og

Umhverfisstefna Ísafoldarprentsmiðju ehf

Það er markmið Ísafoldarprentsmiðju og starfsmanna hennar að nýta sem best það hráefni og þá orku sem notuð er við framleiðslu í prentsmiðjunni og lágmarka neikvæð áhrif starfseminnar á umhverfi hennar. 

Þetta gerum við m.a. með því að:

  • Leita stöðugt leiða til að nýta hráefnið og orkuna betur í framleiðslunni. Teknar hafa verið upp framleiðsluaðferðir sem:
    • lágmarka pappírsnotkun.
    • lágmarka prentlitanotkun.
    • lágmarka hreinsiefnanotkun.
    • lágmarka rafmagns- og gasnotkun.
    • lágmarka spilliefnanotkun.
  • Velja það hráefni sem er umhverfisvænast ef þess er nokkur kostur.
  • Farga spilliefnum eftir ströngustu kröfum.
  • Safna saman öllum pappír sem fellur til í framleiðslu og á skrifstofu, setja hann í pappírspressu og flytja í endurvinnslu.
  • Hvetja starfsmenn til að koma, með í vinnuna, allan pappír sem fellur til heima hjá þeim og er hann sendur í endurvinnslu.
  • Taka á móti pappír frá tengdum félögum til endurvinnslu.
  • Senda allar prentplötur í endurvinnslu.
  • Selja alla pappakjarna úr pappírsrúllum, til aðila sem endurnýta þá.
  • Hafa lágmarkslýsingu á að næturlagi og eingöngu þau tæki í gangi sem nauðsynlega þurfa að vera í gangi hverju sinni.
  • Upplýsa starfsmenn um nauðsyn umhverfisverndar og hvernig þeir geti lagt sitt að mörkum til að vernda umhverfið.

Umhverfismál innan fyrirtækisins eru sífellt í endurskoðun.

 


 
59 50 300

Suðurhraun 1  |  Garðabæ
Sími: 59 50 300  |  Fax: 59 50 310

Beint samband við viðskiptastjóra



Haraldur Jónsson
Sölu- og markaðsstjóri halli@isafold.is 664 0312
Hjörtur Guðnason
Prentráðgjafi hjortur@isafold.is 664 0319
Lára Ásgrímsdóttir
Prentráðgjafi
lara@isafold.is 664 0316
Nökkvi Svavarsson Viðskiptastjóri nokkvi@isafold.is 664 0306
Sigríður Kr. Hafþórsdóttir Viðskiptastjóri didda@isafold.is 664 0310
Moya