Bóndadagur
Bóndadagur Í tilefni dagsins klæddu karlmenn
Ísafoldarprentsmiðju sig sérstaklega vel. Þetta vakti að sjálfsögðu mikla hrifningu kvenfólksins hérna og
Bóndadagur
Í tilefni dagsins klæddu karlmenn
Ísafoldarprentsmiðju sig sérstaklega vel. Þetta vakti að sjálfsögðu mikla hrifningu kvenfólksins hérna og stukku þær til og
buðu uppá „Bóndakaffi“ með kökum og fíneríi.
Í hádeginu verður svo þorramatur sem gleður
margan „bóndann“ hérna. Þorri er eitt af gömlu íslensku mánaðarheitunum. Þorrinn er fjórði mánuður vetrar og hefst
á bóndadegi á föstudegi í 13. viku vetrar, sem getur verið á bilinu 19. – 26. janúar. Þorranum lýkur á
þorraþræl sem er laugardagurinn fyrir konudag og tekur þá góa við. Veður eru oft válynd á þessum tíma og hafa þessir
mánuðir reynst mörgum erfiðir einkum fyrr á öldum er farið var að ganga á matarforðann og kuldar voru miklir. Máltækið að
þreyja þorrann og góuna, merkir að þola tímabundna erfiðleika, tengist einmitt því að lifa af þessa vetrarmánuði en er
einmánuður tók við af góu var stutt í sumarmánuðina.
...