Við höfum nýlokið við að prenta glæsilega grilluppskriftabók fyrir Vífilfell. Í bókinni eru 20 gómsætar grilluppskriftir sem
Íslenska kokkalandsliðið 2011 hefur valið.
Þar má finna uppskriftir af kjöt- fisk- fugla- og grænmetisréttum ásamt gómsætum eftirréttum. Bókin er hin glæsilegasta með
upphleyptu letri á forsíðu, UV lökkun og lamineringu. Enn eitt prentverkið sem við hjá Ísafoldarprentsmiðju erum stolt af. Hönnun
bókarinnar var í höndum Vatikansins.