Það er markmið Ísafoldarprentsmiðju og starfsmanna hennar að nýta sem best
það hráefni og þá orku sem notuð er við framleiðslu í prentsmiðjunni og lágmarka neikvæð áhrif starfseminnar á
umhverfi hennar.
Ísafoldarprentsmiðja hefur hlotið vottun Svansins - Norræna umhverfismerkisins. Við gleðjumst sannarlega yfir þessum áfanga hjá okkur.