
Ísafoldarprentsmiðja er með vottun Svansins - Norræna umhverfismerkisins. Það er markmið Ísafoldarprentsmiðju og starfsmanna hennar að nýta sem best það hráefni og þá orku sem notuð er við framleiðslu í prentsmiðjunni og lágmarka neikvæð áhrif starfseminnar á umhverfi hennar.
Þetta gerum við m.a. með því að:
- Leita stöðugt leiða til að nýta hráefnið og orkuna betur í framleiðslunni. Teknar hafa verið upp framleiðsluaðferðir sem:
o lágmarka pappírsnotkun.
o lágmarka prentlitanotkun.
o lágmarka hreinsiefnanotkun.
o lágmarka rafmagns- og gasnotkun.
o lágmarka spilliefnanotkun.
- Velja það hráefni sem er umhverfisvænast ef þess er nokkur kostur.
- Farga spilliefnum eftir ströngustu kröfum.
- Safna saman öllum pappír sem fellur til í framleiðslu og á skrifstofu, setja hann í pappírspressu og flytja í endurvinnslu.
- Hvetja starfsmenn til að koma, með í vinnuna, allan pappír sem fellur til heima hjá þeim og er hann sendur í endurvinnslu.
- Taka á móti pappír frá tengdum félögum til endurvinnslu.
- Senda allar prentplötur í endurvinnslu.
- Selja alla pappakjarna úr pappírsrúllum, til aðila sem endurnýta þá.
- Hafa lágmarkslýsingu á að næturlagi og eingöngu þau tæki í gangi sem nauðsynlega þurfa að vera í gangi hverju sinni.
- Upplýsa starfsmenn um nauðsyn umhverfisverndar og hvernig þeir geti lagt sitt að mörkum til að vernda umhverfið.
Umhverfismál innan fyrirtækisins eru sífellt í endurskoðun.
Kynntu þér nánar GRÆNAN APRÍL á www.graennapril.is






