Best þykir okkur að fá fullunnin verk í PDF sniði.
Tilboðsverk okkar miðast við að verkinu sé skilað tilbúnu til prentunar. Sé vinnsla verksins ófullnægjandi þannig að upp komi vandamál í vinnslu, verður viðskiptavinurinn að bera þann aukakostnað sem sú vinna felur í sér.
Nokkrir punktar um hvernig á að skila efni til vinnslu:
- Verki má skila á tölvupósti (hentar ekki fyrir stærri verk), geisladiskum, mynnislyklum eða á FTP.
- Ísafoldarprentsmiðja mælir með RGB vinnsluferli, leiðbeiningar er að finna á vef Samtaka Iðnaðarins http://www.si.is/starfsgreinahopar/prentidnadur/rgb/
- Verkið á einungis að vera í einu eintaki.
- Gleymið ekki að prenta út próförk af verkinu og senda með ef mögulegt er. Einnig má senda PDF skjöl sem próförk.
- Allt efni sem er umfram 4 síður er æskilegt að brjóta um í umbrotsforriti eins og InDesign.
- Upplausn mynda skal vera 200 dpi fyrir dagblöð og 300 dpi fyrir tímarit og bækur.
- Ef myndum er þjappað með jpeg til að spara pláss, notið þá „max.-quality“ stillingu, svo myndgæði tapist sem minnst.
- Notið ekki sérliti (Pantone), nema þegar á að prenta þá sérstaklega.
- Verkið skal vera merkt nafni verksins, nafni eiganda og nafni og símanúmeri tengiliðs.
- PDF skjöl sem eru send til okkar þurfa að vera með „Bleed“ og „Crop Marks“. Hér er skjal sem sýnir hvernig það er gert í inDesign






